Starfsgreinaerindi aðjúnks við Landbúnaðarháskólann

fimmtudagur, 20. nóvember 2025 07:00-08:40, Reykjavíkurvegur 50 - NÚ, Reykjavíkurvegur 50, 220 Hafnarfjörður, Ísland

Fundir eru fimmtudagsmorgna kl. 7-8. Engir fundir eru c.a. júní-ágúst


Fyrirlesari(ar):

Ólafur Haukur Magnússon


Skipuleggjendur:
  • Vilmundur Gíslason

Félagi okkar, Ólafur Haukur Magnússon, verður með starfsgreinaerindi á fundinum á fimmtudag.

Hann er rekstrarhagfræðingur að mennt og starfar í dag sem aðjúnkt við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.

Ólafur Haukur hefur einnig starfað innan fiskiræktunar og er öflugur skógarbóndi í Mórudal á Barðaströndinni.

Það verður því spennandi að hlýða á erindi hans.

Ólafur Haukur gekk til liðs við Rótarýklúbbinn Straum í apríl sl. en Ólafur gerðist rótarýfélagi er hann var tekinn inn í Rótarýklúbb Hafnarfjarðar 18. janúar 2001.

Ólafur Haukur Magnússon - Samsett mynd: Guðni Gíslason


Skráning

Skráningarfrestur er liðinn