Skógræktardagur - Allar hendur á loft!
sunnudagur, 14. júní 2026 13:00-16:00, Skógræktarsvæðið okkar
Vefsíða: https://maps.app.goo.gl/19ny5A14Yj176eyT6
Skipuleggjendur:
- Guðni Gíslason
- Ólafur Haukur Magnússon
Nú eru 2.050 trjáplönturnar okkar komnar og eru þessa stundina við bílastæðið sem staðsetningin í fundarboðinu sýnir (þar sem við stoppuðum síðast).
Nú er verk fyrir höndum fyrir vinnufúsar hendur og tilvalið að taka börn og barnabörn með.
Við verðum með plöntustafi en setja má niður allt sitkagrenið og einnig hluta birkis. Við verðum með potta og mold til að umpotta plöntum sem ekki geta farið út í lúpínuna strax.
Frábært ef sem flestir geta mætt, þó ekki væri nema í stuttan tíma.
Líkur eru á frábæru veðri og yndislegt er í tilvonandi lundinum okkar.
Gott er að taka með:
- Litla skóflu,
- Hanska
- Vökva og nesti
- Jafnvel hrífu
Endilega skráið alla sem koma!
Skráning
Skráningarfrestur er liðinn