Thelma Rún van Erven, sálfræðingur verður með fyrirlestur sem hún nefnir „Örkynning á einhverfurófinu“. Stefnir í áhugaverðan fyrirlestur um málefni sem snertir margar fjölskyldur.
Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands og mikill áhugamaður um uppland Hafnarfjarðar og Hafnarfjörð almennt, fer í máli og myndum yfir sögu skógræktar í Hafnarfirði, sem hófst í byrjun nítjándu aldar þegar Bjarni Sívertsen riddari kom til landsins með 500 skógarplöntur.
Fyrirlesari er félagi okkar Einar Rúnar Axelsson heimilislæknir sem fjallar um verki og verkjameðferðir. Fundarefni er í umsjá laganefndar.
Fyrirlesari er Eiríkur Svanur Sigfússon, Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar. Segir hann okkur frá heimsþingi Rótarý í Sidney í Ástralíu 2023. Fundarefni er í umsjá samfélagsnefndar
Stefán Halldórsson, ættfræðitæknir, verður fyrirlesari okkar á fimmtudaginn og nefnir hann erindi sitt, „Ættfræðigrúsk á tölvuöld“.Fjölmennum og tökum með með okkur gesti.
Er Ísland ævimenntunarsamfélag? Um undirbúning nýrra laga um framhaldsfræðslu. Hróbjartur Árnason leiðir námsleið um sem heitir Fræðslustarf og mannauðsþróun við Háskóla Íslands. Hann mun segja okkur frá þátttöku sinni í vinnu við að undirbúa ný lög um framhaldsfræðslu sem eru í undirbúningi. Hró...
Hrannar Björn Arnarsson, ræðismaður Georgíu á Íslandi, verður gestur klúbbsins á fimmtudag og mun fjalla um merka sögu og menningu Georgíu, vöggu víngerðar í heiminum með meiru. Hrannar er framkvæmdastjóri Adhd samtakanna og varaformaður Adhd Europe, auk þess er hann formaður Norræna félagsins á Í...
Í myndum og máli segir Steinunn Benediktsdóttir, félagi okkar, frá ævintýraferð sinni um Inkaslóðir í Perú og Ekvador og svo um Galapagos eyjar, ferð sem hún fór í október s.l.
Á fundinum mun forseti okkar á síðasta starfsári, Rósa Kristjánsdóttir, flytja okkur jólahugvekju. Einnig munu fulltrúar frá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar mæta á fundinn og veita viðtöku framlagi klúbbsins.
Thomas Möller, hagverkfræðingur og rótarýfélagi í Rkl. Reykjavík-Miðborg verður gestur fundarins og flytur erindi sem hann nefnir „Tímastjórnun á efri árum“. Eflaust áhugavert efni fyrir fólk á öllum aldri. Fundarefni er í boði samfélagsnefndar.
Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á Sjúkrahúsinu Vogi verður gestur fundarins og segir frá starfseminni á Vogi. Valgerður, sem er Hafnfirðingur, mun örugglega veita okkur góða innsýn í það mikla starf sem er í boði á Vogi. Fundarefni er í boð laganefndar.
Ómar Bragi Steindórsson umdæmisstjóri 2023-2024 kemur í heimsókn og segir okkur frá áherslum Rotary International í ár og áherslum umdæmisins og hvetur okkur til dáða. Við tökum fagnandi á móti honum.
Hjalti Þór Guðmundsson, lögfræðingur hjá Sjóvá og forstöðumaður tjónasviðs, segir frá skiptinemaárinu sínu í Brasilíu fyrir 20 árum og ræðir um framrúðutjón og sjálfbærni í tjónaþjónustu hjá Sjóva. Hjalti var 28. skiptineminn sem Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar sendi út en hann dvaldi í Brasilíu 2001-2...
Guðni Gíslason, félagi okkar, segir okkur frá ævintýranlegri hlaupaferð í Katalónsku fjöllunum en ferðin var sameiginleg ferð Hlaupahóps FH og Skokkhóps Hauka. Má hætta í miðju hlaupi? Hvernig líður manni ef maður þarf að hætta? Fundurinn er í umsjón kynningarnefndar.
Á rótarýfundinum á fimmtudag fjallar Þóroddur S. Skaptason um 102 ára sögu Kirkjugarðs Hafnarfjarðar og stöðuna í dag.
Fundur með væntanlegum félögum
Gagnaöryggisfyrirtækið Keystrike lokar breiðgötunni sem notuð er til árása í dag með nýrri hugbúnaðarlausn, sem sagt að hakka tölvur hjá óbreyttu starfsfólki til að komast inn í fyrirtæki, en eykur samt þægindin því það er ekkert verið að trufla notandann með endalausum auðkenningum.
Á næsta fundi verður félagi okkar Joost van Erven með fyrirlestur um tvö efni sem eru honum ofarlega í huga:Rafvæðing báta í Amsterdam Ferðaskrifstofan Hanna Stína og Joost Fundarefni er að þessu sinni í umsjón starfsgreina- og félaganefndar
Nú er komið að skógræktardeginum okkar. Við byrjum á að hittast kl. 10:30 á planinu ofan við skátaskálann Skátalund við Hvaleyrarvatn. Síðan förum við að reitinum okkar og þar verður sérfræðingur okkur til aðstoðar og við fáum trjáplöntur til að planta. Um hádegið verður grill (pylsur og með þ...
Kæru félagar Fimmtudaginn 8. júní er lokafundur starfsársins 2022-2023 Stjórnarskipti og almennar umræður.
Alexandra Ýr van Erven er forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta, LÍS, og ætlar að segja okkur frá hagsmunabaráttu stúdenta og almennt frá háskólamálunum út frá sjónarmiði nemanda.
Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna verður fyrirlesari okkar á morgun og mun segja frá starfsemi Neytendasamtakanna og stöðu neytendamála á Íslandi. Fundarefni er í boði kynningarnefndar klúbbsins.