Valdimar er nýr klúbbfélagi

fimmtudagur, 25. september 2025

Guðni

Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði og bæjarfulltrúi var formlega tekinn inn í Rótarýklúbbinn Straum í morgun.

Starfandi forseti, Guðmundur Ámundason sagði honum frá hvað ætlast var til af honum og hvað hann gæti ætlast til af klúbbfélögum og fræddi hann um gildi Rótarý.

Nældi hann rótarýmerki í barm hans sem tákn þess að hann væri nú fullgildur rótarýfélagi og bauð hann velkominn í klúbbinn.

Valdimar er fæddur 1978 og er giftur Sigurborgu Geirdal. Hann er Bolvíkingur að uppruna, stundaði menntaskóla og háskóla á Akureyri og var lengi skólastjóri í Öldutúnsskóla áður en hann tók við stöðu bæjaratjóra í ársbyrjum.

Við bjóðum Valdimar hjartanlega velkominn í klúbbinn.

Valdimar Víðisson, nýr rótarýfélagi og Guðmundur Ámindason, starfandi forseti.