Stjórn næsta árs kjörin með lófaklappi

fimmtudagur, 11. desember 2025

Guðni

Stjórnarkjör fór fram í klúbbnum í upphafi fundar í morgun.

Stjórn lagði fram tillögu að stjórnarfólki og kallaði eftir fleiri tillögum. Engar fleiri tillögur komu fram og var tillaga stjórnar samþykkt með lófaklappi.

Í stjórn Straums starfsárið 2026-2027 verða því:

  • Forseti: Guðni Gíslason
  • Ritari: Ólafur Haukur Magnússon
  • Verðandi forseti: Margrét Edda Ragnarsdóttir
  • Gjaldkeri: Júlíus Karlsson
  • Stallari: Margrét S. Jónsdóttir
  • Fráfarandi forseti: Vilmundur Gíslason

Framundan er undirbúningur fyrir næsta starfsár en fræðslumót verðandi stjórnarmanna verður 7. mars í safnaðarheimili Lágafellssóknar í Mosfellsbæ.

Nýkjörin stjórn Rótarýklúbbsins Straums 2026-2027