Þórður Bjarni er nýr félagi í Straumi

fimmtudagur, 10. september 2026

Guðni

Þórður Bjarni Guðjónsson, fv. aðalræðismaður í Grænlandi var í dag formlega tekinn inn í Rótarýklúbbinn Straum og fluttist úr Rótarýklúbbnum í Nuk í Grænlandi þar sem hann hefur verið félagi í tvö ár. Hann er einnig gestafélagi í nýstofnuðum tengiklúbbi, Rotary Artic. 

Þórður Bjarni er Hafnfirðingur, útskrifaðist sem stúdent frá Flensborg 1977 og viðskiptafræðingur frá HÍ með framhaldsmenntun í Kaupmannahöfn.

Hann hefur starfað í utanríkisþjónustunni nær allan sinn starfsferil, verið sendiráðunautur í Brussel og London og aðalræðismaður í Færeyjum, Kananda og nú síðast í Grænlandi.

Þórður er kvæntur Jórunni Kristinsdóttur og eiga þau einn son, Júlíus Andra Þórðarson.

Við bjóðum Þórð Bjarna hjartanlega velkominn í klúbbinn.

Guðni Gíslason, forseti Straums og Þórður Bjarni Guðjónsson við inntökuna. - Ljósm.: Þóroddur Skaptason.