Mæting við safnaðarheimili Fríkirkjunnar í Hafnarfirði kl. 10:00 sunnudaginn 28. febrúar Fólk er hvatt til þess að mæta klætt eftir veðri og í góðum skóm. Um að gera að bjóða með sér fjölskyldunni til hjálpa til og læra að plokka. Hafnarfjarðarbær útvegar okkur poka og hanska en ekki víst að þe ... Mæting við safnaðarheimili Fríkirkjunnar í Hafnarfirði kl. 10:00 sunnudaginn 28. febrúar Fólk er hvatt til þess að mæta klætt eftir veðri og í góðum skóm. Um að gera að bjóða með sér fjölskyldunni til hjálpa til og læra að plokka. Hafnarfjarðarbær útvegar okkur poka og hanska en ekki víst að þeir passi fyrir yngstu kynslóðina. Forseti mælir með að taka með sér plokktangir, sem fást t.d. í Bónus. Við höfum fengið 30 gul vesti merkt Rotary sem við klæðum okkur í. Á meðfylgjandi teikningu sýnir svæði sem Hafnarfjarðarbær bendir okkur á, en þau fara nokkru sinnum í viku allt árið að hreinsa hjá Firði og Strandgötuna ásamt Thorsplani og þennan aðal miðbæjarkjarna. Við munum velja okkur verkefni utan við miðbæjarkjarnann. Við munum skipuleggja hvar við söfnum pokum saman svo Hafnarfjarðarbær geti sótt þá á mánudagsmorgun. Fjarðarkaup gefur okkur kókómjólk og kex sem við ætlum að njóta í safnaðarheimilinu eftir vinnu dagsins. Veðurspáin er góð þannig að um að gera að mæta með fjölskylduna og hreinsa til í fallega bænum okkar.
Veturinn 2008 ákváðu klúbbfélagar í Rótarýklúbbnum Straumi-Hafnarfjörður að efna til...
Á þessari síðu finnur þú algengar spurningar og svör um Polaris. Það er skipt í efn...
Laugardaginn 10. júní 2023 tók Rótarýklúbburinn Straumur formlega að sér trjátæktun ...
Valnefnd umdæmisstjóra Rótarý á Íslandi hefur að loknu valferli upplýst að Elísabet ...