Rótarýklúbburinn Straumur-Hafnarfjörður
Stofnaður fimmtudagur, 5. júní 1997
Klúbburinn 50916
- Rótarýumdæmið á Íslandi
- Stofnnúmer
10 ára saga Rótarýklúbbsins Straums í stiklum
Hátíðarfundur í tilefni 10 ára starfsafmælis 5. júní 2007
Aðdragandinn
Á vordögum 1997 var hafin vinna við að stofna nýjan Rótarýklúbb í Hafnarfirði.
Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar hafði árið áður haldið upp á 50 ára starfsafmæli sitt.
Klúbburinn var orðinn mjög fjölmennur, fundartíminn í hádeginu hentaði ekki öllum, meðalaldur mjög hár og andstaða var við inntöku kvenna.
Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar tók að sér að vera móðurklúbbur hins nýja klúbbs.
Gísli Jónsson félagi í Rkl. Hafnarfjarðar tók að sér undirbúningsvinnuna sem hann vann af mikilli ákefð og dugnaði.
Aldrei stóð þó til að Gísli færðist yfir í nýja klúbbinn.
Samkvæmt lögum yrði um blandaðan klúbb karla og kvenna að ræða.
Alls gáfu 10 félagar í Rkl. Hafnarfjarðar vilyrði fyrir flutningi yfir í nýja klúbbinn.
Nýr klúbbur stofnaður
Stofnfundurinn var haldinn í Hafnarborg fimmtudaginn 5. júní 1997.
Til fundarins boðuðu Jón Hákon Magnússon, formaður útbreiðslunefndar Rótarýumdæmisins á Íslandi og Gísli Jónsson, formaður undirbúningsnefndar Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar.
Stofnfélagar voru 19, en aðeins fluttust 4 félagar milli klúbbanna.
„Stjórnarmyndunin“
Gengið var út frá því að ákveðin þekking færðist yfir í nýja klúbbinn með þeim félögum sem kæmu frá gamla klúbbnum.
Sá reynslumesti hafði tekið að sér að vera fyrsti forseti klúbbsins, en hann hætti við þátttöku á síðustu stundu og þá tilkynnti Gísli Jónsson að Óskar Valdimarsson myndi taka starfið að sér.
Frá upphafi var rætt um að leggja áherslu á jafnrétti kynjanna í klúbbnum.
Fyrsta stjórnin
Aðalstjórn
Óskar Valdimarsson, forseti
Valgerður Sigurðardóttir, varaforseti
Guðmundur Ámundason, ritari
Auður Kristinsdóttir, gjaldkeri
Sigríður Sigurðardóttir, stallari
Varastjórn
Ingimundur Einarsson, vararitari
Gunnlaugur Harðarson, varagjaldkeri
Birna Katrín Ragnarsdóttir, varastallari
Ákvarðanir á fyrstu fundum
Ákveðið var að þeir sem gerðust félagar í klúbbnum fyrir 1. okt. 1997 skyldu teljast stofnfélagar.
Ákveðið var að hafa sumarlokun frá 3. júlí til 14. ágúst. Það mætti mikilli mótspyrnu hjá skrifstofu umdæmisins.
Var engu að síður gert í skjóli þess að klúbburinn væri ekki orðinn fullgildur klúbbur og heyrði því ekki undir lög RI.
Sumarlokanir
Sumarlokunin mæltist svo vel fyrir að tillaga kom fram árið eftir um að festa hana í sessi. Þetta var gert (ennþá í óþökk skrifstofunnar) og hefur haldist síðan.
Nú hefur lögum RI verið breytt á þann veg að sumarlokanir eru heimilar. Telja forsvarsmenn Straums að frumkvæði klúbbsins hafi þar ráðið miklu.
Fundartíminn
Fundartími eftir sumarfrí var á kvöldin í Hraunholti yfir veturinn og fram í júni 1998, en þá var ákveðið að prófa morgunfundi yfir sumarið og var fundað í Hafnarborg.
Þegar kom að því að fara aftur yfir í kvöldfundina voru nokkrir sem óskuðu eftir því að við færum hvergi og héldum í morguntímann. Atkvæðagreiðsla fór fram og var yfirgnæfandi meirihluti fyrir því að fara hvergi. Hefur þetta haldist síðan.
Nafn klúbbsins
Nöfn klúbba á Íslandi voru með bæjarheitið eða borgarhlutann í nafninu, en erlendis er hins vegar algengt að klúbbarnir heiti sérnöfnum.
Fram fór skrifleg skoðanakönnun meðal félagsmanna um nafn á klúbbnum og varð sérnafnið Straumur fyrir valinu.
Skrifstofa umdæmisins taldi þetta nafn ekki standast lögin, jafnvel þó að nafnið yrði “Straumur Hafnarfirði” og bað okkur um að endurskoða nafngiftina.
Ekki voru félagarnir tilbúnir til að gefast upp strax og ákveðið var að fara framhjá íslensku umdæmisskrifstofunni og hafa beint samband við höfuðstöðvar RI.
Bréf var ritað til Rotary International 10. júlí 1997 þar sem óskað var samþykkis á nafninu: „Rótarýklúbburinn Straumur – Hafnarfjörður“
Í bréfinu segir: “The name “Stream” refers to a landmark within the town limits, but also indicates the positive streams that flow within Rotary”
Svar barst fljótlega frá höfuðstöðvunum þar sem staðfest var að nafnið uppfyllti lög Rotary International.
Ákveðið var því að halda sig við nafnið þrátt fyrir andmæli umdæmisskrifstofunnar
Á umdæmisþingi á Egilsstöðum haustið 1997 tilkynntum við nafnið á klúbbnum.
Í fyrstu sló þögn á hópinn, en síðan fór kurr um salinn.
Í fundarhléi var mikið rætt um þetta “framtak” (eða frumhlaup) Hafnfirðinganna og forsetinn fékk nokkuð tiltal “undir fjögur”
Straumsfólkinu varð ekki haggað og næsti klúbbur sem stofnaður var heitir „Borgir“
Stofnfélagar
Um haustið voru félagar orðnir 26, 15 karlar og 11 konur (stofnfélagar)
Af þessum hópi eru 11 ennþá félagar:
Auður Kristinsdóttir
Gísli R. Rafnsson
Guðmundur Ámundason
Jónas Guðlaugsson
Kolbrún Jónsdóttir
Óskar Valdimarsson
Sigríður J. Jónsdóttir
Steinunn M. Benediktsdóttir
Valgerður Sigurðardóttir
Þórhallur Heimisson
Örn Ólafsson
Árgjöldin
Ljóst var strax í upphafi að fjármálin yrðu erfið fyrstu árin hjá svona litlum klúbbi.
Fullt árgjald var innheimt strax fyrsta árið, kr. 19.000 eins og í móðurklúbbnum.
Yfir helmingur af þessari upphæð gengur að jafnaði til RI og íslenska umdæmisins.
Samið var við umdæmisskrifstofuna á Íslandi um “byrjendaafslátt”.
Dráttur varð á því að tilkynna klúbbinn til RI sem varð til þess að fyrsta starfsárið varð gjaldfrjálst.
Lögin þýdd
Laganefnd félagsins barðist kröftuglega fyrir því í nokkur ár að bæði stofnskrár og sérlög klúbba yrðu þýdd yfir á íslensku.
Talið var ótækt að klúbbarnir þyrftu að búa við það að vinna eftir enskum lögum.
Baráttan skilaði árangri, því nú liggur þessi þýðing fyrir.
Fullgildingarhátíðin
Hátíðin var haldin 25. apríl 1998 í Hraunholti og sóttu hana 95 manns.
Margt góðra gesta, m.a. Birgir Ísleifur Gunnarsson þáverandi umdæmisstjóri og Ingvar Viktorsson þáverandi bæjarstjóri.
Borðhaldið var allt hið glæsilegasta og margar ræður voru fluttar.
Klúbbnum bárust við þetta tækifæri margar góðar gjafir og ungir hafnfirskir listamenn sáu um tónlistaratriði.
Merki klúbbsins
Ákveðið var strax á fyrstu fundum að láta hanna merki (logo) fyrir klúbbinn.
Einn af stofnfélögunum, Þóra Dal Þorsteinsdóttir var grafískur hönnuður þannig að “hæg voru heimatökin”
Þóra kom með tillögu sem allir voru strax sáttir við og tók hún að sér að útfæra hana.
Merkið sýnir bæði upphafsstaf klúbbsins og þá hreyfingu sem felst í nafninu.
Starfsgreinaátök
Áfram hélt klúbburinn að gera umdæmisskrifstofunni lífið leitt.
Í ársbyrjun 2000 var tekinn í nýr félagi með starfsheitið „Heimilisrekstur“
Þetta starfsheiti fannst ekki í neinum listum hjá Rótarýhreyfingunni og kallaði því fram viðbrögð hjá umdæmisskrifstofunni.
Stjórn Straums var ákveðin í að bakka ekki í þessu máli og var það að lokum látið niður falla.
Mannúðarmálin
Straumur hefur stutt á hverju ári starf Mæðrastyrksnefndar í Hafnarfirði.
Hin síðari ár hefur jólafundur klúbbsins verið haldinn í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju og hafa fulltrúar Rkl. Hafnarfjarðar mætt á þann fund ásamt fulltrúum mæðrastyrksnefndar, þar sem báðir klúbbarnir hafa afhent styrki sína.
Jafnréttishefð
Það hefur ávalt ríkt sterk jafnréttiskennd í Rótarýklúbbnum Straumi.
Forsetar hafa verið karl og kona til skiptis öll þessi 10 ár sem liðin eru:
Óskar Valdimarsson
Valgerður Sigurðrdóttir
Guðmundur Ámundason
Katrín Óladóttir
Örn Ólafsson
Steinunn Benediktsdóttir
Gísli R. Rafnsson
Sigríður Kristjánsdóttir
Júlíus Karlsson
Sigrún Þorgrímsdóttir
Ferðir til útlanda
Klúbburinn hefur staðið fyrir tveimur ferðum til útlanda á þessum áratug sem liðinn er frá stofnun.
Farið var ásamt móðurklúbbnum til Færeyja árið 1999.
Þá fóru félagar úr Straumi til Kaupmannahafnar á haustdögum 2006.
Báðar ferðirnar heppnuðust eins og best verður á kosið.
Ekki verður látið þar við sitja .....
Ferðir innanlands
Gönguferðir hafa verið farnar í uppland bæjarins og í hraunin við Straum
Þá hefur “Höll Sumarlandsins” verið heimsótt ................................... (ritskoðun)
Meðlimir
Virkir félagar |
26 |
- Karlar |
14 |
- Konur |
12 |
Paul Harris félagi |
3 |
Gestafélagar |
0 |
Heiðursfélagar |
0 |
Aðrir tengiliðir |
0 |
|
|