Golfmót Rótarý 2025
Golfmót Rótarý á
Íslandi verður haldið þann 25. júní hjá Golfklúbbi Öndverðarness og hefst klukkan 12:00. Öllum Rótarýfélögum á Íslandi er boðið til
leiks og einnig er gert ráð fyrir gestum.
Í lok móts verða viðurkenningar afhentar og við snæðum saman og eigum
skemmtilega stund.
Mótið er í þrennu
lagi:
1.
Klúbbakeppni
Rótarý, þar sem krýndir verða meistarar þessa árs. Um er að ræða punktakeppni á milli liða. Félagar úr hverjum klúbbi telja saman til
liðs og síðan eru tvö bestu skor liðsmanna tekin saman. Hæstu samanlagðir punktar liðs krýna
sigurvegara liðakeppninnar.
2.
Punktakeppni
einstaklinga. Allir þátttakendur telja
með í þessu móti og veitt eru verðlaun fyrir flesta punkta í karla- og
kvennaflokki. Þrjú efstu sætin fá
verðlaun.
3.
Höggleikur
– veitt eru verðlaun fyrir lægsta skor, án forgjafar.
Verðlaun verða mismunandi
í hverju þrepi. Sigurvegarar
klúbbakeppninnar fá veglegan farandbikar og montrétt á því að vera besti
Rótarýklúbbur í golfi – a.m.k. þetta ári 😊.
Það er einnig farandbikar fyrir höggleikinn. Verðlaun fyrir einstaklingskeppni verða mörg
og margvísleg.
Skráning fer fram
á þessum hlekk. Það er einnig gert ráð
fyrir, að Rótarýfélagar skrái sig í Pólaris kerfinu, til að við getum haldið
utan um keppendur frá hverjum klúbbi.
Hlökkum til að
sjá ykkur sem flest þann 25. júní á Öndverðarnesi.