Nú er komið að því! Ekki missa af!
Útsendarar klúbbsins með formann umhverfisnefndar í fararbroddi hefur fundið frábært svæði sem við getum strax gert að yndislegu rjóðri.
Stígar verða stikaðir og margar fætur marka stígana að nýja lundinum.
Einnig verða sett niður nokkur fjöldi trjá.
Við komum að svæðinu annars staðar en áður en ekið er í áttina að Skátalundi og þegar sést í hliðið er haldið til vinstri, þröngan veg til enda en þar eru ágæt bílastæði. Sjá kort.
Nú er spáð flottu veðri og eftir vinnu í skótræktarsvæðinu verður samvera og grill í Skátalundi á eftir. Hvað verður á grillinu??
Fjölskyldumeðlimir velkomnir. Endilega skráið?
Takið með ykkur vettlinga, skóflur, trjáklippur og sög ef þið eigið en Guðmundur kemur með sláttuorf en ef einhver á öflugt sláttuorf vær frábært að bæta við.
Fundurinn er í umsjón umhverfisnefndar.