Kynnum Citystrides á rótarýfundi
fimmtudagur, 12. mars 2026 07:00-08:00, Reykjavíkurvegur 50 - NÚ, Reykjavíkurvegur 50, 220 Hafnarfjörður, Ísland
Fundir eru fimmtudagsmorgna kl. 7-8. Engir fundir eru c.a. júní-ágúst
Fyrirlesari(ar): Guðni Gíslason
Skipuleggjendur:
Á þessum fundi kynnumst við nýju áhugamáli fólks víða um heim, en það er að ganga eða hlaupa allar götur viðkomandi sveitarfélags.
Hjá mörgum verður þetta árátta eða bland af áráttu og áhuga á að kynnast öllum götum bæjarins. Fyrir aðra er þetta fín leið til að finna nýja göngu- eða hlaupaleið.
Okkar Guðni Gíslason er einn þeirra sem hefur fallið fyrir þessu og þræðir nú götur Hafnarfjarðar sem hann á eftir en hann hefur líka hlaupið 33% af götum ítalsks sveitarfélags, þó hann hafi aðeins hlaupið þar í gegn.
En við fáum líka góðan tíma til að spjalla!
Skráning
Skráningarfrestur er liðinn