Umdæmisstjóraskipti á Íslandi

þriðjudagur, 10. júní 2025

Jón Karl ÓIafsson

Á morgun þann 11.júní fara fram umdæmisstjóraskipti hér á Íslandi.  Jón Karl Ólafsson lætur af störfum sem umdæmisstjóri, en við tekur Sigríður Björk Gunnarsdóttir, félagi í Rótarýklúbbnum Hofi í Garðabæ.  Starfsárið hefst formlega þann 1.júlí, en hefð er fyrir því, að umdæmisstjóraskipti fari fram áður en klúbbar fara í sumarfrí.

Okkur hefur tekist á síðasta ári að snúa við þróun í félagatali og okkur fjólgar nú aftur eftir nokkur ár með fækkun félaga.  Þetta verður áfram eitt helsta verkefni okkar hér á landi.  Við viljum reyna áfram að miða við, að félagar í Rótarý hér verði ekki færri en 1.200 á hverjum tíma.

Það verður frábært að fá Sigríði Björk til starfa og við hvetjum áfram alla Rótarýfélaga til að leggja okkar góða málstað lið.  Það er og verður gaman í Rótarý.

Sigríður Björk Gunnarsdóttir, Umdæmisstjóri 2025-2026