Fundir Rótarýklúbbsins Straums verða í húsnæði skólans Nú að Reykjavíkurvegi 50.
Endurbætur standa yfir á húsnæði safnaðarheimilis Fríkirkjunnar, þar sem fundirnir hafa verið og óvíst er um verklok.
Þó eru bjartsýnar vonir um að það verði undir lok ársins.
Gengið er inn um innganginn fyrir miðju húsi (ekki á horni).