NÝTT! - Leggjum í Rótarýsjóðinn og fáum skattaafslátt

þriðjudagur, 31. mars 2026

Guðni

Nú geta íslenskir rótarýfélagar og velunnarar Rótarý lagt fé í Rótarýsjóðinn í íslenskum krónum með millifærslu og geta átt rétt á skattaafslætti.

Rótarýumdæmið hefur stofnað „Rótarý styrktarsjóð“ sem tekur við fénu og sendir í nafni gefanda til Rótarýsjóðsins. Þannig telst framalagið með framlagi klúbbs viðkomandi.

Með því að smella á „GEFÐU Í RÓTARÝSJÓÐINN efst á klúbbsíðunni, ferðu beint inn á styrktarformið.

Um Rótarýsjóðinn

„Rótarýsjóðurinn er hjartað í þjónustu Rotary – hann breytir framlögum félaga í styrki sem gera klúbbum og umdæmum kleift að bæta líf og skapa varanlegar lausnir í nær- og fjarsamfélögum.“

Hlutverk Rótarýsjóðsins (Rotary Foundation) er að efla skilning, vináttu og frið í heiminum með því að bæta heilsu, styðja menntun og draga úr fátækt Sjóðurinn kemur að verkefnum í yfir 200 löndum og landsvæðum

Hvaðan koma tekjurnar?

Sjóðurinn er fjármagnaður af frjálsum framlögum frá rótarýfélögum og vinum hreyfingarinnar og þessi framlög eru grundvöllur þess að Rótarý geti stutt við fjölbreytt og áhrifarík verkefni.

Sjóðirnir:

Framlög til Annual Fund – SHARE eru helsti tekjustofn sjóðsins. Eftir þriggja ára ávöxtun er framlögum skipt í:

World Fund – styður stærri, alþjóðleg verkefni, PolioPlus, friðarverkefni o.fl. [rotarynewsonline.org]

District Designated Funds (DDF) – umdæmin ráða sjálf hvernig þessu fé er varið til styrkja og verkefna innan umdæmisins

Hvers konar verkefni?

Rótarýsjóðurinn veitir fjölbreytta styrki sem nýtast öllum klúbbum – litlum sem stórum:

District GrantsSveigjanlegir styrkir fyrir stutt verkefni

  • Styrkja stutt og skýr verkefni bæði innanlands og erlendis.
  • Má nota til mannúðarverkefna, styrkja til náms, ungmennastarfs, samfélagsverkefna, faghópa o.fl.
  • Henta vel fyrir verkefni sem klúbbar vilja hrinda í framkvæmd fljótt og með einfaldri umsókn.

Global Grants – Stór, sjálfbær og mælanleg verkefni

  • Stuðningur við stór alþjóðleg verkefni með varanlegum áhrifum.
  • Geta fjármagnað verkefni, námsstyrki og atvinnuþjálfunarteymi.
  • Upphæðir eru yfirleitt 30.000–400.000 USD og verkefnin verða að tengjast einu af áherslusviðum Rótarý.

Disaster Response Grants

  • Notaðir til að styðja aðgerðir vegna náttúruhamfara og endurreisnar.

Programs of Scale

  • Stór, langtímaátök sem hafa þegar sýnt árangur – t.d. verkefni á sviði heilbrigðis og samfélagsþróunar.

Okkar markmið

  • Meðalframlag hvers rótarýfélaga á Íslandi var á síðasta ári um 6 þúsund kr. (49 USD)
  • Meðalframlag á hvern rótarýfélaga á alþjóðavísu er um 13 þús kr. (104 USD 104)
  • Markmið Rótarýumdæmisins er að hver félagi leggi um 12.500 kr á ári (100 USD) sumir gefa meira og aðrir minna.    

Gefðu núna! SMELLTU

Ný auðveld leið til að gefa í Rótarýsjóðinn