Sorgarmiðstöð fékk Hvatningarverðlaun Straums

fimmtudagur, 7. maí 2026

Guðni

Hvatningarverðlaun Rótarýklúbbsins Straums voru afhent á fundi klúbbsins í morgun.

Að þessu sinni féllu þau í skaut Sorgarmiðstöðvar en stofnun miðstöðvarinnar var tímamótaverkefni þar sem sameinast var um, að við ástvinamissi fengju syrgjendur viðeigandi heildrænan stuðning án þess að þurfa að leita á marga staði.

Með dugnaði og eljusemi starfsfólks og velunnara er þeim eiga um sárt að binda nú mögulegt að leita til Sorgarmiðstöðvar og fengið fengið þar stuðning, ráðgjöf og fræðslu á sama stað. Slík starfssemi er afar dýrmæt fyrir fyrir þá/þau sem orðið hafa fyrir missi, en einnig fyrir samfélagið allt

Sorgarmiðstöð fær hvatningarverðlaunin fyrir mikilvægt stuðningstarf við syrgjendur eftir ástvinamissi.

Kristín Lilja Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Sorgarmiðstöðvar, veitti verðlaununum viðtöku úr hendi forseta klúbbsins, Vilmundar Gíslasonar.

Sagði Kristín frá starfsemi Sorgamiðstöðvar og var gerður góður rómur af kynningu hennar og fundarmenn spurðu margs.

Kristín Lilja Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Sorgarmiðstöðvar og Vilmundur Gíslason forseti Straums. - Ljósm.: Guðni Gíslason