Rótarýklúbburinn Straumur sótti í vor um styrk úr Vorviði stuðningsverkefni Lands og skóga við skógrækt félagasamtaka til skógræktar á svæði klúbbsins í Langholti. Í dag var styrkurinn sóttur, alls 2.050 trjáplöntur.
Fékk klúbburinn 520 birki, 520 stafafurur, 520 sitkagreni og 490 alaskaaspir.
Guðjón Grétarsson, félagi í umhverfisnefnd klúbbsins sótti plönturnar austur fyrir fjall og tóku forseti og verðandi forseti (sem þó hefur tekið við keðjunni) ásamt verðandi formanni umhverfisnefndar við plöntunum og var þeim til bráðabirgða komið fyrir skammt frá spildunni en nokkrir bakkar voru þó bornir alla leið og nokkrum greniplöntum plantað.
Framundan bíður ærið starf, í fyrsta lagi að koma plöntun 200 m leið í rjóður þar sem hluta þeirra verður umplantað í stærri planta til ræktunar áður en hægt verður að planta þeim út. Þá er eftir að planta sitkagreninu, sem eru þróttmiklar, í lúpínubreiðuna og einnig verður hluta af birkinu og furum plantað þar sem lúpínulaust er.
Klúbburinn hefur áform um að gera svæðið aðgengilegt rótarýfjölskyldum og almenningi með því að útbúa lund, koma fyrir borðum og leggja stíga.
Svæðið er um 3,5 ha, sumt vaxið trjám en klúbburinn hefur síðustu þrjú ár plantað stálpuðum plöntum víða um svæðið.