Hróbjartur Árnason er nýr félagi klúbbsins

fimmtudagur, 9. nóvember 2023

Guðni

Hróbjartur Árnason, lektor og kennsluþróunarstjóri Menntavísindasviðs Háskóla Ísland, var formlega tekinn inn í Rótarýklúbbinn Straum í morgn, en hann hafði komið á nokkra fundi sem gestur Joost Van Erven, sem er þá hans stuðningsfélagi.

Guðmundur forseti ávarpaði Guðmund við inntökuna og sagði m.a. „Í trausti þess að þú styðjir málefni Rótarýhreyfingarinnar - lýsi ég hér með yfir - að þú ert fullgildur félagi í Rótarýklúbbi með þeim réttindum og skyldum sem því fylgja.“ Að því loknu nældi hann rótarýmerkinu í Hróbjart sem staðfestingu á félagsaðildinni og bauð hann velkominn í klúbbinn.

Hróbjartur Árnason og Guðmundur Ámundason, forseti 2023-2024