Ný stjórn kjörin á klúbbþingi

fimmtudagur, 9. nóvember 2023

Guðni

Á klúbbþingi sem fram fór í morgun sagði Guðni Gíslason stuttlega frá Rótarýsjóðnum og mikilvægum verkefnum hans og hvatti félaga til að skrá sig á my.rotary.org og gefa í sjóðinn og minnti á að framlag félaganna reiknast líka sem framlag klúbbsins.

Guðmundur forseti minnti á sérlög klúbbsins og hvatti fólk að kynna sér þau og koma með ábendingar um það sem þar mætti fara.

Þá fór fram stjórnarkjör og lagði stjórn fram eftirfarandi tillögu að nýrri stjórn og var hún samþykkt með lófaklappi.

Stjórn klúbbsins 2024-2025 verður þá þannig skipuð:

Forseti: Anna Rós Jóhannesdóttir

Verðandi forseti:  Vilmundur Gíslason

Ritari:  Sigríður Kristjánsdóttir

Gjaldkeri: Júlíus Karlsson

Stallari: Guðjón Grétarsson

Fráfarandi forseti: Guðmundur Ámundason