Takk fyrir að vilja koma til okkar með erindi!
Rótarýfundir í Straumi hefjast kl. 7 að morgni.
Forseti býður fólk velkomið og er e.t.v. með örstuttar tilkynningar og býður til morgunmatar.
Í morgunmatnum gefst félögum og gestum tækifæri til að spjalla saman um allt mögulegt, kynnast hverjum öðrum betur og njóta saman.
3ja mínútna erindi er flutt og mögulegar eru einhverjar tilkynningar.
En síðast kl. 7.30 er fyrirlesara boðið að hefja sína tölu.
Skjávarpi er á staðnum og fartölva, en það hefur reynst best ef fyrirlesari nýtir sýna tölvu ef þess er þörf.
Miðað er við að fyrirlestur sé um 20 mínútur og í lokin býður forseti upp á spurningar til fyrirlesara.
Fundi er svo slitið kl. 8 og oftast er farið með fjórpróf Rótarýfélaga.
Ef þú hefur einhverjar sérþarfir getur þú alltaf haft samband við forseta klúbbsins eða ritara á netfanginu straumur@rotary.is