Lokahóf

fimmtudagur, 10. júní 2021 17:00-23:00, Sjálfstæðissalurinn Norðurbakki 1 220 Hafnarfjörður
Kæru félagar í Rótarý Straumi.
Nú stendur til að fara aðeins út fyrir bæinn og kíkja á heitasta staðinn í augnablikinu, þ.e. Grindavík.
 
Við munum taka rútu á fimmtudaginn 10.6. kl 17,00 á bílaplani móti okkar fundarstað og halda af stað og kíkja á eitthvað markvert á leið okkar á Salthúsið þar sem við munum vera með svæði fyrir okkur.
Þar fáum við mat og eitthvað létt með - tökum lagið saman og skiptum um stjórn.
 
Það þarf að láta vita í dag eða fyrripart á morgun mánudag til að ganga frá pöntun, bæði á matnum og eins með rútuna.
 
Við tökum auðvitað makana með í boði klúbbsins enda aldrei eins gaman og þegar þeir eru með.
 
Sendið mér póst kollastebba@simnet.is eða hér á síðuna eða í síma 8666444 ( ef næst ekki í hann þá leggja á og hringja aftur - hann er smáskrýtinn síminn minn )
 
Bestu kveðjur
Kolla